Historical records matching Benedikt Sveinsson
view all
Immediate Family
-
wife
-
daughter
-
daughter
-
daughter
-
mother
-
father
About Benedikt Sveinsson
F. á Húsavík 2. des. 1877, d. 16. nóv. 1954. For.: Sveinn Víkingur Magnússon (f. 19. júní 1846, d. 8. febr. 1894) gestgjafi og söðlasmiður þar og k. h. Kristjana Guðný Sigurðardóttir (f. 15. febr. 1845, d. 17. júní 1904) húsmóðir og ljósmóðir. Faðir Bjarna alþm. og ráðherra og Péturs alþm. Benediktssona og afi Björns Bjarnasonar alþm. og ráðherra og Halldórs Blöndals alþm. og ráðherra. K. (5. júní 1904) Guðrún Pétursdóttir (f. 9. nóv. 1878, d. 23. nóv. 1963) húsmóðir, hálfsystir móður Ragnhildar Helgadóttur alþm. og ráðherra. For.: Pétur Kristinsson og k. h. Ragnhildur Ólafsdóttir. Börn: Sveinn (1905), Pétur (1906), Bjarni (1908), Kristjana (1910), Ragnhildur (1913), Guðrún (1919), Ólöf (1919).
Stúdentspróf Lsk. 1901. Próf í forspjallsvísindum 1902.
Íslenskukennari í barnaskóla Reykjavíkur 1901—1902. Við fiskkaup fyrir Edinborgarverslun á Austfjörðum sumarið 1902. Einn af stofnendum Landvarnarflokksins 1902 og blaðamaður við blöð flokksins, Landvörn og Ingólf 1903. Póstmaður í Reykjavík 1903—1904. Ritstjóri í Reykjavík 1905—1911 og 1913— 1915. Endurskoðandi Landsbankans 1912—1915. Aðstoðarbókavörður í Landsbókasafni 1915—1916. Gæslustjóri Landsbankans 1917, bankastjóri 1918— 1921. Yfirskoðunarmaður landsreikninga 1916—1917. Ráðinn 1922 útgáfustjóri að sögu Alþingis. Endurskoðandi Íslandsbanka 1923—1930. Bókavörður í Landsbókasafni 1931—1941, skjalavörður í Þjóðskjalasafni 1941—1948.
Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1914—1920. Í fullveldisnefnd 1917—1918. Í verðlagsnefnd 1918—1919. Forseti Hins íslenska þjóðvinafélags 1918—1920. Kosinn í Grænlandsnefnd 1924. Sat í mörg ár þing Fiskifélags Íslands. Í mþn. um bankamál 1925.
Alþm. N.-Þing. 1908—1931 (Sjálfstfl. eldri (Landvfl.), Sjálfstfl. þversum, Sjálfstfl. eldri, Borgfl. eldri, Framsfl.).
Forseti Nd. 1920—1930. 1. varaforseti Nd. 1911 og 1916—1917, 2. varaforseti Nd. 1914.
Ritaði fjölda greina í blöð og tímarit um sögu Íslands, bókmenntir, íslenskt mál, þjóðmál o. fl. Annaðist útgáfu Íslendingasagna fyrir Sigurð Kristjánsson bóksala.
Ritstjóri: Ingólfur (1905—1909 og 1913—1915). Fjallkonan (1910—1911). Þjóðin (1914—1915).
view all
Benedikt Sveinsson's Timeline
1877 |
December 2, 1877
|
||
1905 |
May 12, 1905
|
||
1906 |
December 8, 1906
|
||
1908 |
April 30, 1908
|
||
1954 |
November 16, 1954
Age 76
|
||
???? | |||
???? | |||
???? |